miðvikudagur, apríl 2

Wow hvað tíminn flýgur

Ég er varla búin að blikka og Elmar bara orðinn hálfs árs... hálf scary hvað tíminn líður hratt. Hann er farinn að vera miklu meira barn en baby en það er nú best að fylgjast með honum á síðunni hans.

Lítið að frétta af okkur í Helsingör, ætluðum alltaf í voða reisu núna í mæðraorlofinu en skatturinn ákvað að borða allann varasjóðinn okkar svo það verður víst ekkert úr því. Til að bæta gráu ofaná svart er launadeildin mín búin að standa í einhverju rugli og hefur víst borgað mér of mikið síðustu mánuði (tók nú ekkert eftir því) sem ég á núna að borga tilbaka... þegar ég er nýbyrjuð á dagpeningum (sem ég er reyndar ekkert farin að fá því launadeildin sendir mér ekki pappírana sem ég á að senda þeim til að fá mæðraorlofið mitt útborgað). Sem sagt, týpisk Gugga tekin á þetta alltsaman! Og ég sem fann svo fína skó sem mig langar í og á svo innilega skilið að fá :o)

Brynjulf er alltaf á hundraði að vinna og læra. Ég gat platað hann til að halda frí á laugardögum í marsmánuði svo við hittumst nú reyndar meira síðasta mánuð en við höfum gert fram að þessu. Ég hlakka svo til þegar hann þarf ekki að vinna svona mikið lengur. Hann er svo duglegur þessi elska.

Það hefur verið lítið um gestagang hjá okkur undanfarið, mamma kom fyrir páska og ég ætla einmitt að skoða myndirnar hennar þaðan núna, so long!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Gugga mín.

En fúlt. Þetta skattland tekur allt sem það kemst í fjanda kornið. Fegin að vera flutt frá Danmörku og þessari fáránlega umotiverandi skattheimtu, sem skilar sér nú ekkert í neinu sérstöku fyrir neitandann. Verri leikskólar þarna en á Íslandi, þar sem það er ekki heitur matur í hádeginu fyrir 2ja ára og eldri eins og hér, og svoleiðis. Þetta er allt notað í dópistana og þá atvinnulausu.

En þið komið nú til Íslands og mig hlakkar nú mjög til þess.

Já, ótrúlegt hvernig tíminn líður, nú verður Alexander 5 mánaða í næstu viku.

Jæja, better dash darling,
be good,
luv,
Sigga.

Nafnlaus sagði...

Hæ Gugga mín. Þú ættir að skoða þetta blogg aðeins og sjá myndirnar sem eru þar. Þú ættir að kannast við nokkur andlit....
allt gott að frétta.
Knús og kossar Þóra Sjöfn.

http://www.ginfan.com/blog/

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra að ykkur líður öllum vel :-) þrátt fyrir Mr. Taxman! En ég er alveg búin að gleyma lykilorðinu inn á síðuna hans Elmars, þarft endilega að gefa mér það aftur.
Knús frá OZ
XXX