föstudagur, janúar 12

Loksins föstudagur!!!


Lengi búin að bíða eftir þessum degi, fyrsti frídagurinn i langann tíma og mín átti von á skÁSTU systir í heimsókn með litlu skvísuna. Ég hafði ekki séð þær síðan i byrjun des en þær voru sjálfum sér líkar, nema að sú litla var orðin stór og sú stóra var orðin litil (amk mjó) :o)

Við ætluðum nú bara að sitja heima, spjalla og taka því rólega en enduðum báðar með poka fulla af nýju dóti sem einhvernveginn rötuðu upp i hendurnar á okkur. Ásta varð aðeins að stytta ferðina því hún átti víst sjálf von á gestum og síðan er ég bara búin að dunda mér heima.

Ég verð að vinna um helgina en hugsa að ég skreppi yfir sundið á mánudaginn til að kíkja betur á skvísurnar og spreða smá pening á útsölunum í Sverige. Það er stórhættulegt að vinna bara venjulega vinnuviku, maður fær minni pening því það er engin yfirvinna og svo er svo mikill tími í að eyða því litla sem maður þénar... ussusvei

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hejsa.... kíki á bloggið þitt öðruhvoru.... fylgjast með þér kona ;) ertu komin í alm. prakisis..... stuð.... ég er bara í próflestri í alm.prakis og socialmedicin...... ;) knús eva í árósum.

Gugga sagði...

Hey nei ekki byrjud i almen praksis, ekki fyrr en 1.juni og eg er ekki enn buin ad fa frettir um thad hvert eg verd send.

Gaman ad heyra i ther Eva, gangi ther vel i profunum

Annie sagði...

Found your blog when I was looking for my old one that I never started using *hrm*
Anyway, there's plenty of pictures I've missed, it feels like I've lived behind a stone or something the last half year, and next week the baby will be here and I will be even more gone :-)
The baby is in breech, I have a planned c-section next Thursday January 25th, wish me luck ;-)
I'll send pics as soon as I have some.
MIss you!
Take care darling,
Annie