miðvikudagur, desember 31

Gleðilegt nýtt ár!

Best að nota tækifærið og óska öllum farsældar á komandi ári. Væri ekki verra ef ég fengi að hitta alla vini og ættingja sem mest á nýja árinu.

Allt fínt að frétta héðan. Vorum með gesti frá Íslandi um jólin og núna frá Noregi. Tökum því með ró um áramótin, tengdó er hjá okkur og Binni fer að vinna í nótt svo ég verð bara róleg heima með fjölskyldunni. Væri nú samt til í gott áramóta partý. Verð bara að taka það út seinna í staðinn.

Elmar er nokkuð hress, engar stórar pestir í gangi amk. Hann er algjört skott og er farinn að sýna svo mikinn karakter. Veit alveg hvað er bannað en lætur það ekkert stoppa sig, bíður stundum eftir því að við séum á staðnum til að taka eftir því að hann sé að gera eitthvað bannað til að fá viðbrögð.

Nú er ég búin með kandidatsárið hérna úti, seinasti dagurinn var í gær svo ég ætti að fara að fá fullt lækningaleyfi í póstinum snemma á nýja árinu. Vei!!! Ætti kanski að halda svaka partý fyrst það varð engin útskriftarveisla þegar ég kláraði skólann.

Ég byrja í nýrri vinnu á föstudaginn, held að það verði nú ekki neinn kontakt við sjúklinga fyrr en eftir helgi. Hlakka til að byrja á einhverju nýju en finnst óttalega skrýtið að ég sé hætt að vinna í Nivaa.

Jæja, ætla að áramótast aðeins, knús á línuna. GUGGAN

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með að vera orðin læknir eftir allt puðið gegnum árin.
Gott að vera loksins búin hjartanlega til hamingju með það :-)

knús kveðja frá klakanum Rakel ,Auðunn og Guðbjörg Elva Dís